Færsluflokkur: Bloggar
1.2.2008 | 20:32
...að veturinn lét sko sjá sig á Austurlandinu!
éminn almáttugur djísús kræstur!!! Í fyrradag byrjaði að snjóa og svo bara
hélt áfram að snjóa og svo snjóaði meira. Í gær voru dalir og heiðar bara lokaðar svo Egilsstaðabúar urðu gjörso vel að eyða nóttinni í City Reyðarfjörður og næturvaktafólk þaðan var bara heima hjá sér. Svo hélt bara áfram að snjóa og ég átti ekki mitt besta móment í morgun. Æddi galvösk út með bleika húfu og loðvettlinga og þurfti að klofa snjó upp að mitti! Hélt í bjartsýniskasti að fíni fjórhjóladrifni jeppalingurinn minn færi nú létt með þetta en annað kom á daginn, eftir hálftíma basl með spól og snjómokstur var mér bjargað af gaur á stórum jeppa sem dró mig upp á götu
Hann hefur sennilega áttað sig á því að mér væri ekki viðbjargandi; eldrauð í kinnum, í blautum gallabuxum upp á læri og snjó allsstaðar veifandi plastskóflu eins og meiníak með bleiku húfuna á hausnum
Vinnufélagi
minn tjáði mér í morgun að það væri bara um tvennt að ræða:
a) fá mér stærri jeppa
b) ná mér í karlmann
ég kýs stærri jeppa!!
Hvað hefur maður annars við karlmann að gera svona dags daglega? Þeir birtast yfirleitt eins og guðsgjöf svona þegar maður þarf á þeim að halda 
Bloggleysið upp á síðkastið hefur annars ekki stafað af viðburðaleysi. Síðustu helgi var Ólöf í heimsókn og við áttum alveg STÓRKOSTLEGA helgi og erum meðal annars búnar að plana næstum 3ja vikna sólarferð í haust! ó mæ
god, ég er sko strax farin að hlakka til!!! Í vikunni á undan kom mamma í heimsókn sem fór þó ekki betur en það að hún var komin með sjúkrabíl til neskaupsstaðar nokkrum tímum seinna! Til að gera langa sögu stutta er hún komin heim núna og er sona næstum í lagi held ég. H
elgina þar á undan var Valzý í heimsókn sem var nú heldur ekki amalegt. Það var sko haldið dóminískt partý með suðrænni tónlist, dancing lessons og dóminísku rommi og vindlum!
Svo er búið að vera svaðaleg törn í vinnunni í vikunni og ég stefni á það að gera mest lítið annað en hafa það huggó hérna heima um helgina! Læt nokkrar myndir frá síðustu 2 vikum fylgja með til að lífga þennan langa texta aðeins upp 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.1.2008 | 11:53
...að þetta verður frábært ár!
Er alveg handviss um það
Síðasta ár var viðburðamikið og skemmtilegt en held þetta verði ennþá skemmtilegra! 
Það er jú ótrúlega spennandi að taka þátt í starti á risastóru álveri, ég á helling af góðum vinum hérna og annarsstaðar í heiminum og ég ætla svo sannarlega að ferðast eitthvað á þessu ári líka. Svo er líka von á mörgum góðum heimsóknum til mín næstu vikurnar og nú get ég flogið suður 10 sinnum á þessu ári fyrir aðeins 4þús krónur í boði Alcoa svo maður gerir kannski meira af því að kíkja í helgarheimsóknir
Þetta eru svo óstaðfestar utanlandsferðahugleiðingar þessa árs
:
- Japan og Tyrkland í maí (vinna)
- frívika í Evrópu í júni (Ítalía eða Spánn)
- 2 frívikur í Latín Ameríku í ágúst/sept (Flórída, skemmtiferðaskip til Kúbu/Mexíkó, flug til dóminíska)
- Kanada í nóvember (vinna)
- 2 frívikur í Latin Ameríku í desember (já, ég er húkkd, langar ekkert að vera heima næstu jól heldur
)
Já, dominíska verður það aftur þar sem ég gekk í ferðaklúbb RCI í síðustu ferð og á nú böns af hótelvikum um allan heim og fékk í kaupbæti frívikur á sama hóteli og við vorum á. Nánar tiltekið svítu fyrir 4 með öllu innifalið sem ég verð að nota innan 2ja ára.
Einn starfsmaðurinn í ferðaklúbbnum er nú orðinn góðvinur minn og einn dansarinn af hótelinu hringdi í mig um daginn og sagðist ætla að giftast mér og eignast 20 börn
Greyið strákarnir fá dollaramerki í augun þegar þeir sjá hvítar konur sem hafa efni á að ferðast svona á milli heimshluta
Anyways, markmið helgarinnar er að koma íbúðinni í samt lag og þvo þrjú tonn af þvotti!
Ætli maður kíki ekki samt í partý í kvöld líka 

Og já, ef einhverjum vantar ferðafélaga á árinu er ég alltaf inn 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.1.2008 | 20:38
...að ég veit barasta ekki hvar á að byrja
Byrja kannski á að óska öllum sem detta hingað inn gleðilegs árs og þakka kærlega fyrir jólakveðjurnar sem ég er búin að fá. Ég skildi alla út undan þetta árið þar sem ég sendi engin jólakort.
Áramótaheitið mitt í ár er að fara aftur til dóminíska lýðveldisins og sem fyrst! Þessi staður og þessi ferð var bara með ólíkindum ótrúlega stórkostleg! Fullkomið veður, æðisleg strönd
, yndislegt fólk, geðveik tónlist, frábærir dansar, flott hótel með æðisgengnum skemmtiprógrömmum á daginn og kvöldin
, góður matur og klikkuð diskótek og ekki má gleyma strákunum sem kunna svo sannarlega að dansa og hreyfa mjaðmirnar!!!
Svo eignaðist maður helling af nýjum vinum og herbergisfélaginn minn hún Valzý er eiginlega bara orðinn nýr fjölskyldumeðlimur. Hef aldrei á ævinni farið í sólarferð í 2 vikur og bara alls alls ekki verið tilbúin að fara heim AT ALL
Það er ennþá svona “bitter sweet” að hlusta á tónlistina frá hótelinu og horfa á myndböndin. Gamló var ÆÐISGENGIN upplifun og hér er ein áramótamynd af okkur Reyni og brot af uppáhalds dansinum okkar allra. Það glittir í mig og Reyni þarna fyrir aftan en í fremstu röð eru starfsmenn af hótelinu: Jonathan “Pink Panther”, Antonio “Cocoloco”, Antonio “Mickey Mouse og “The Blonde” en allir dansarirnar á hótelinu eru með svona ótrúlega lame sviðsnöfn sem þau voru þó ægilega stolt af
Fleiri sviðsnöfn og nick komu við sögu í þessari ferð: The skinny boy, The funny boy einnig nefndur Carrot Head, Big Lips, Wheres the whissel, Black Panther, Homminn, Hector the Protector og ekki má gleyma Sleezy doorman!
Móðir vor gekk mestmegnis undir nafninu sexy mama og mama mafia (dugleg að prútta
)
Anyways, ég ætla að fara að hlaða inn myndum með allri ferðasögunni en þangað til eru nokkrir lærdómspunktar frá ferðinni:
- Það er FÁBÆÆÆÆR hugmynd að fara á sólarhótel með öllu innifalið. Það þýðir að maður þarf aldrei að borga fyrir mat, drykki (já kokkteila og allt), sólstóla eða bara neitt.
- Dóminískir vanilluvindlar eru RUGLgóðir! Taldir betri en kúbanskir og OMG það er upplifun að reykja þá.
- Það er gaman að djamma með Beetlejuice, Spiderman og Mask en þeir birtust á diskóið góða Coco Bongo á hverju kvöldi kl. 1
- Það er flóknara en ég hélt að snorkla en hellídí gaman þegar maður nær tökum á því.
- Það er MJÖG slæm hugmynd að setjast upp í bíl í dóminíska. Umferðareglurnar eru byggðar á því hver er frekastur og jafnvel fullastur!
- Nokkrir dóminískir og haitískir karlmenn REALLY REALLY REALLY LIKE hvíta kvenmenn sem eiga peninga. Sumir þeirra liggja undir grun að vera í alvörunni karlkyns hórur og aðrir vilja fá hvítar kærustur og ganga undir nafninu spanky pankies

- Mental note to self: Þú þarft ALLTAF sterka sólarvörn, líka þegar þú ert komin með smá lit!!!
- Moskítóar ELSKA mig
alveg sama hvaða brellibrögðum ég beiti... 
- Miðameríka hefur svipaða yndislega stórkostlega menningu og Brasilía. Íslendingar þyrftu að læra að vera svona hamingjusamir með öll þau lífsgæði sem við höfum.
- Hvítingjar eru ekki góðir að hreyfa mjaðmirnar en æfingin skapar meistarann!
- Hvítir karlmenn kunna alls alls ekki að hreyfa mjaðmirnar og þeir eru ekki duglegir að strippa

- Það eru leðurblökur í dóminiska og þar eru líka tarantúlur en þær halda sig sem betur fer mest á sykurökrunum.
- Það er bannað að setja klósettpappír í klósettskálina á dóminíska...

- Nú veit ég afhverju sjóræningjar eru alltaf að drekka romm, karabískt romm er SJÚKLEGA gott! Go Cuba Libre!!!

Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.12.2007 | 01:32
...að ég er á leiðinni til dóminíska lýðveldisins
JJJJJJJJJJJJJJJJJJEEEEEEEEEEEEEEEEESSSSSSSSSSSSSSSSSSSS 



Verð vonandi afstressuð þegar ég skrifa hérna næst, kreisí kreisí að gera alltaf en Í FYRRAMÁlið er ég loksins að fara til að liggja í sólinni í 2 vikur 





Skildi eftir 2 nýfædda kettlinga heima. Held fyrsta verkefnið mitt á nýju ári verði að koma þessum blessaða kynóða ketti í geldingu! 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.12.2007 | 23:39
að tilraun nr. 2 í höfuðborgarferð nálgast
Ég kem á seinnipart fimmtudags og fer beint að kenna upp í Hí. Verð svo fyrir sunnan fram á laugardag. Maður er svo bara að fara í sólina í vikunni eftir
Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! Sjitt hvað ég þarf samt að ná að gera mikla vinnu áður en ég fer. Held það verði ekki mikið um rólegheit þangað til ég fer... 
Þetta er annars búið að vera hin skemmtilegasta helgi. Það var nokkuð fjölmennt hérna á föstudagskvöldið að búa til ilmkerti og í gær var innflutningspartý og mikið mikið fjör 


Anyways, hitti vonandi sem flesta fyrir sunnan næstu helgi og ferðin gangi aðens betur en síðast! 
PS var að bæta fleiri myndum inn frá New York og já nýjustu ferðafréttir herma er að ég er að fara til Japan og Tyrklands í vor með teyminu mínu að skoða Toyota verksmiðjur!!!!!!!!!!!!!! 




Bloggar | Breytt 10.12.2007 kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.12.2007 | 10:07
...að það varð ekki mikið úr suðurferð
Komst aldrei lengra en á Egilsstaði þar sem flug er jú búið að liggja niðri í meira en sólahring
Settist að hjá Reyni og fylgdist með flugfréttum og við tókum bara letistemmingu á þetta, lágum í sófanum og horfðum á jólamyndir og nú er ég að fara heim á Reyðarfjörð aftur.
Grautfúl að missa af öllu því skemmtilega sem ég ætlaði að gera og öllum góða matnum sem mamma var búin að undirbúa en Háskólinn vill samt ekki sleppa mér svo það er spurning hvort ég reyni að endurtaka leikinn eftir 2 vikur... vonda veðrið hefur samt ekkert látið sjá sig hér, snjóar bara og snjóar núna svo spurning hvort maður fari ekki bara að jólast eitthvað um helgina 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.11.2007 | 16:31
...að ég verð í höfuðborginni næstu helgi!
Loksins, loksins segir maður nú bara! Þótt ég hafi oft "millilent" í City Reykjavík síðustu vikurnar er nú orðið soldið langt síðan maður hefur stoppað eitthvað...
Alveg kominn tími á smá quality time með vinum og vandamönnum og þar sem ég er að fara að leika prófessor (í formi gestafyrirlesara) í Háskóla Íslands á föstudaginn í næstu viku ætla ég að verja helginni hjá mömmsu og litla brósa. Er barasta FREE AS A BIRD föstudagkvöld, laugardag og hálfan sunnudag (fyrir utan helling af mömmudekri audda) 
SVO hver er í bænum og hver vill hitta mig? 
PS1. Stefni á að sleppa hælunum um helgina svo ég verði nú örugglega ferðahæf þá næstu 
PS2. Og takk fyrir að kommenta, það er miklu skemmtilegra að skrifa þegar einhver kommentar 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.11.2007 | 17:00
...að snjór og háir hælar fara ekki vel saman!
Þarf nokkuð að segja meira? 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.11.2007 | 22:05
...að blondes have more fun!
Sem er eins gott því það er stundum erfitt að vera blonde. Það getur samt verið mjög lærdómsríkt því ljóskuskapur getur verið mjög kjánalegur en kjánaskápur er samt mjög góður til að læra af. Hér er til dæmis ýmislegt sem ég er búin að læra síðan á sunnudaginn:
- Það er mjög góð hugmynd að athuga fyrst hvort dvd spilarar séu tengdir við sjónvarp áður en maður notar hálftíma í að prófa alla takka á öllum fjarstýringum.
- Það er ekki góð hugmynd að sofa bara í 5 tíma nóttina áður en maður kennir hópi af nýliðum. 5 tíma svefn hefur í för með sér mikið magn af nýyrðum og skringilegum orðatiltækjum við heilsdags blaður. Það er góð hugmynd að geta gert grín að sjálfum sér. Hlátur er líka góður. Hann lengir lífið.
- Það er góð hugmynd að fara út og ræsa bílinn á köldum morgnum áður en maður er búinn að gera sig til svo bílinn sé heitur og næs þegar maður kemur út aftur. Það er þó ennþá betri hugmynd að muna eftir því að maður geri það í stað þess að nota 10 mínútur í að leita að bíllyklunum áður en maður fer út í annað skipti.
- Besta ráðið við að bregðast við hagamús trítlandi í stofunni er að klæða sig í hvít kúrekastígvél og halda áfram að vinna. Kettir sjá um músamál.
- Það er slæm hugmynd að reyna að skipuleggja fataskápa sem eru yfirfullir af fötum. Nú er fataskápur skipulagður og rest af svefnherbergi, þar með talið rúm yfirfullt.
- Það er ekki góð hugmynd að blanda heilli krukku af thai red curry saman við eina dós af kókosmjólk. Töluvert minna magn að red hot karrí gefur sennilega betri árangur.
Já, blonded have more fun
Akkúru kommentar annars enginn lengur?
90 innlit síðustu daga en bara 2 komment
mí lækí komments 

Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.11.2007 | 20:34
...að ég er singstar!
Er búin að slá heimsmet í leti í dag! Er búin að gera næstum því nákvæmlega ekki neitt, áttaði mig á því að það er HRIKALEGA langt síðan ég hef átt sona letidag og mikið svaðalega er það nú gott!
Næstum því eina sem ég hef afrekað í dag er að fara út til að sækja mér pizzu og komst þá að því að það er 6 STIGA FROST!!! brrrrrrrrrr það er kalt 
Er annars búin að syngja HRIKALEGA mikið singstar um helgina, held ég sé orðinn singstarholic og er að fara í singstar party næstu helgi líka! Er búin að smita soldið mikið út frá mér held ég 
ætti kannski að fara í samstarf með einhverjum af stelpunum hér að neðan? finnst ég passa ágætlega inn
hvað ætti spice girls nafnið mitt þá að vera? 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)











