Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2006

...að nú er minns fyrir austan

Buin að lesa bændablaðið á shellsstöðinni, stoppa fyrir beljunum sem voru að rölta yfir veginn í Fagradalnum og njóta sveitasælunnar Svalur


...að þetta var dásamleg helgi!

Ég kom heim í skínandi fína íbúð á laugardaginn og er búin að hafa það óggeeeeeðslega mikið gott. Ég er búin að kúra með kallinum og kisunum og drekka rauðvín með æðislegri vinkonu og fara í ræktina og í kaffihús og kíkja í ammæliskaffi og meira að segja föndra smá! Gerði ekki neitt sem mig langaði ekki að gera. ALGJÖRT ÆÐI! Hlæjandi  Held ég hafi örugglega skrifað það oft áður en ég skrifa það aftur og stend sko við það - HEIMA ER BEST! Svalur

...að nú þarf Joakim að fara að gera hreint!

Því skvísan er að koma heim, jeeeeeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii. Þegar ég eyði laugardagskvöldinu næsta heima hjá mér verður það annað kvöldið á 3 vikum sem ég er heima hjá mér. jjjjjjjjjjjeeeeeeeeeiiiiiiiiiiiiiiiiii hlakka til að kúra heima og gera nákvæmlega ekki neitt nema kúra. Þetta er samt búið að vera frábærlega lærdómsrík og skemmtileg Bandaríkja- og Kanadaferð þótt hún taki aðeins of mikinn tíma frá "venjulegri vinnu" þ.e. þessum verkefnum sem ég er að vinna í. Fengum æðislegar móttökur og frábært kveðjupartý og erum nú komin aftur tilbaka til Montreal þaðan sem við fljúgum annað kvöld heim á leið. Jeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Hlæjandi

...að öryggið er fyrir öllu

Ég er nú búin að tékka mig út af hótelinu í Montreal og er að fara bílandi í sveitina í franska Kanada en það er ótrúlega fallegt í þessum litlu bæjum þarna. Ég er mikið mikið glöð að vera ekki að fara í flugvél þar sem ég eyddi rúmlega 12 tímum í flugvél síðasta lau-mán og sennilega meiru í biðtíma og öryggisleit á flugvöllum. Óákveðinn  Veit ekki hvað ég líkist hryðjuverkamanni mikið í dag en ég gerði það víst allavega greinilega síðustu helgi. Ekki fór fram hjá neinum á Bandarískum flugvöllum að líkurnar á hryðjuverkaárás voru HIGH (orange code) og ég var að sjálfsögðu tekin í öll þau auka tékk sem hægt er að fara í - bara ég og ekki sá sem var að ferðast með mér. Svo láta þeir alltaf eins og maður hafi unnið í lottó: "Mam (hvað annað?), the airline has selected you for an extra screening" með þjónustubros á hæstu gráðu. Mér var nú ekkert sama í Baltimore en þar voru sona víkingasveitargaurar út um allt með þvílíkar hríðskotabyssur á bakinu. Ef þeir hefðu verið í Charlotte, NC þar sem ég millilenti hefðu þeir sko örugglega skotið mig! Þar hef ég verið sett í aukaleit í hvert einasta skipti sem ég kem þangað en aldrei þeir sem ferðast með mér Öskrandi

...að það er gott að slaka aðeins á

Ekki að það sé nein megaslökun í gangi en bara svona venjulegur vinnudagur í dag Brosandi Í dag var 28 stigi og sól svo ég rölti aðeins um Sainte Catherina, sem er held ég aðalmiðbæjargatan hérna og skoðaði mannlífið. Fór inn á tælenskan stað að fá mér að borða og rak augun í hákarlasúpu og snákasúpu á matseðlinum. Forvitnin fór næstum því með mig en af einhverjum ástæðum gat ég ómögulega sannfært mig um að mig langaði að borða þennan ófagnað og fékk mér bara kjúkling Glottandi Það er annars með ólíkindum óskemmtilegt að borða alltaf einn - gott ég verð ekki ein í næstu viku líka. Var annars mjög fyndið að þegar ég var að borða var ég að skipuleggja í höfðinu á mér hvaða verkefni ég ætti að takast á við fyrst þegar ég kæmi á hótelið aftur og var svona við að fá mini kvíðakast yfir þessu öllu þegar þjónninn kom með "fortune cookie" fyrir mig og hvað haldiði að hafi staðið á henni?! "You will be succesful at work" Algjör snilld Hlæjandi

P.S. Frönskumælandi fólk talar ótrúlega krúttlega ensku...


... að mér finnst kjánalegt að vera "mem"

thank you mam, no problem mam, good morning mam, you´re welcome mam - stundum er þetta aðeins of mikið af því góða Óákveðinn Ég held að sum hótel hafi ofþjálfað starfsmennina í customer service. Hluti af prógramminu er greinilega líka að hrósa viðskiptavinum þegar tækifæri gefst, í gær fékk ég t.d. að heyra, "I love your haircut, mam" og einu sinni var ég með rithönd eins og kvikmyndastjarna Svalur

Þetta er búið að vera alveg crazy vinnuvika með heilsdags fundum og námskeiðum og síðustu dagana er ég búin að vera "lost in tranlation" ein á hótelinu og þar sem námskeiðið er haldið þar hef ég varla farið út fyrir hússins dyr. Nú er námskeiðshaldi aftur á móti lokið og um helgina ætla ég aðeins að leyfa mér að gera annað en vinna og sofa. Á sunnudag fer ég áfram til Deshambault, Quebec þar sem ég verð alla næstu viku með hópi starfsfélaga og mér skilst við förum svo síðasta daginn til Monreal.

En jæja, best að fara aðeins í labbitúr um miðbæ Montreal og sleikja sólina aðeins áður en ég held áfram að vinna. Maður ætti kannski að kíkja í Montreal Casino í kvöld og reyna fyrir sér í spilaheppninni?Glottandi


...að ég er mætt til Montreal

en ég er búin að nota aðeins meiri tíma í flugvélum og flugvöllum síðustu daga en góðu hófi gegnir en sem betur fer verð ég kyrr hér í nokkra daga... Hlæjandi

...að það var tekið á móti mér með knúsi á Baltimore!

JEIIIIIII Það er í fyrsta skipti í langan tíma sem einhver hefur tekið á móti mér á flugvelli erlendis en þökk sé Ólöfu sætu sem eyddi með mér kvöldinu og meira að segja nóttinni í Baltimore. Við áttum nokkur góð ljóskumóment í akstrinum frá flugvellinum á hótelið en þetta hafðist á endanum Hlæjandi  Við fengum okkur steik og rauðvín og sátum og kjöftuðum fram á nótt í hinum mestu huggulegheitum. Æðislegt að eiga svona vini í úglöndum sem nenna að koma hitta mann þegar tækifæri gefst til Brosandi  Ég þurfti svo að fara eldsnemma í flug til Charlotte og þaðan til Knoxville sem ég er núna í hita og Hilton huggulegheitum í Tennesee fylki en þetta er í fyrsta skipti sem ég kem hingað. Er með einn ferðafélaga með mér að þessu sinni og við afrekuðum að fara í shopping meil í dag, hver hefði trúað þessu?!? Glottandi  skrýtið hvað manni vantar alltaf eitthvað þegar útsölur eru í gangi....

...að það er allt fullt af túristum!

Mín lenti sko bara næstum á götunni í vikunni vegna offramboðs á túristum á skerinu fagra. Ég eyddi vikunni fyrir austan og vegna gallaðs bókunarferils hjá annaðvhort ónefndri ferðaskrifstofu eða ónefndu hóteli átti ég engan samastað fyrstu nóttina. Ég er nú bjartsýn að eðlisfari svo ég ákvað að sofa bara einhversstaðar á Egilsstöðum Svalur Það var sko ekki alveg að gera sig en þar voru öll hótel og öll gistihús full og það sama gilti um Reyðafjörð, Eskifjörð, Fáskrúðsfjörð og eitthvað gistihús í einhverjum dal Ullandi Mér var þó bjargað fyrir horn v.góðsemi fastagests eins sem gat reddað sér gistingu hjá fjölskyldumeðlimum á svæðinu - alltaf gaman að rekast á gott fólk sem vill allt gera fyrir náungann!

Það er annars rúmlega nóg að gera í vinnunni og á morgun laugardag er ég rokin til Bandaríkjanna til að ná á fund í Knoxville - Tennesse kl.8 mánudagsmorgunn Óákveðinn 


að það er gott að vera heima

Eins gott að njóta þess því ég verð heima fram á þriðjudag og sést svo lítið í 3 vikur þar á eftir. Hvað varð annars um þessa sól sem átti að vera hérna fram yfir helgi? Ég var búin að plana þvílíkt grill og út í garð setu og sund og svona. Ætlaði alveg að njóta þess að taka smá kósíköst í góða veðrinu þessa löngu helgi en jæja jæja ætli það sé ekki alveg hægt þó sólin skíni ekki á mann Hlæjandi Ég ætla allavega ekki að leggja það á mig að liggja einhversttaðar á þúfu og láta rigna á mig um helgina. Ef það eru fleiri innipúkar eins og ég sem ætla að vera í bænum þá má koma og heimsækja mig... Glottandi


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband