Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

...að ég er á leiðinni til dóminíska lýðveldisins

JJJJJJJJJJJJJJJJJJEEEEEEEEEEEEEEEEESSSSSSSSSSSSSSSSSSSS  GrinGrinGrinGrin

Verð vonandi afstressuð þegar ég skrifa hérna næst, kreisí kreisí að gera alltaf en Í FYRRAMÁlið er ég loksins að fara til að liggja í sólinni í 2 vikur  GrinCoolGrinGrinCoolGrin

Skildi eftir 2 nýfædda kettlinga heima. Held fyrsta verkefnið mitt á nýju ári verði að koma þessum blessaða kynóða ketti í geldingu! Wink


að tilraun nr. 2 í höfuðborgarferð nálgast

Ég kem á seinnipart fimmtudags og fer beint að kenna upp í Hí. Verð svo fyrir sunnan fram á laugardag. Maður er svo bara að fara í sólina í vikunni eftir Cool Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! Sjitt hvað ég þarf samt að ná að gera mikla vinnu áður en ég fer. Held það verði ekki mikið um rólegheit þangað til ég fer... Sideways
Þetta er annars búið að vera hin skemmtilegasta helgi. Það var nokkuð fjölmennt hérna á föstudagskvöldið að búa til ilmkerti og í gær var innflutningspartý og mikið mikið fjör LoLGrinTounge

Anyways, hitti vonandi sem flesta fyrir sunnan næstu helgi og ferðin gangi aðens betur en síðast! Smile

 PS var að bæta fleiri myndum inn frá New York og já nýjustu ferðafréttir herma er að ég er að fara til Japan og Tyrklands í vor með teyminu mínu að skoða Toyota verksmiðjur!!!!!!!!!!!!!!  GrinGrinGrinGrinGrin


...að það varð ekki mikið úr suðurferð

Komst aldrei lengra en á Egilsstaði þar sem flug er jú búið að liggja niðri í meira en sólahring Frown Settist að hjá Reyni og fylgdist með flugfréttum og við tókum bara letistemmingu á þetta, lágum í sófanum og horfðum á jólamyndir og nú er ég að fara heim á Reyðarfjörð aftur.

Grautfúl að missa af öllu því skemmtilega sem ég ætlaði að gera og öllum góða matnum sem mamma var búin að undirbúa en Háskólinn vill samt ekki sleppa mér svo það er spurning hvort ég reyni að endurtaka leikinn eftir 2 vikur... vonda veðrið hefur samt ekkert látið sjá sig hér, snjóar bara og snjóar núna svo spurning hvort maður fari ekki bara að jólast eitthvað um helgina Smile


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband