Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
25.2.2007 | 20:55
...að betra er seint en aldrei
Ég hafði það sem sagt af að setja inn myndir frá brúðkaupinu hans pabba sem ég ætlaði að gera einhverntimann í janúar. Er búin að reyna að setja inn performance videoið Róberts og Guðnýar en það er sirka griljón megabæt og kemst ekki inn með góðu móti. Er þetta ekki annars frábær fjölskyldumynd??? HA?!? Hver er að taka mynd? Hvert á ég að horfa??!!?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.2.2007 | 21:30
...að ég er rosalega dugleg að púsla saman húsgögnum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.2.2007 | 21:28
...að ég er loksins tengd heima hjá mér
VVÍIIIIIIII
Það kostaði sko blóð, svita og tár en hafðist að lokum ![]()
Af tilefni þess að gamli góði heimasíminn minn virkar núna dó gemsinn minn svo þeir sem hafa verið að reyna að ná í mig í þann síma geta bara gefist upp í bili. Ég ætla ekkert að kaupa mér nýjan fyrr en ég fjárfesti í IPhone þegar hann kemur á markað!!! ![]()
ÞVÍLÍK GRÆJA!!!
Það er samt hægt að gemsa mig í vinnusímann...
Reyðfirðingurinn (sem verður sennilega aldrei búinn að koma sér almennilega fyrir miðað við núverandi frammistöðu)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
18.2.2007 | 09:43
...að það er gott að koma heim til hlýja Íslands
Fyndið að koma úr snjó og frosti heim til Íslands í 5 stiga hita og auðar götur
Missti næstum af vélinni heim frá Boston vegna seinkunar frá Washington en slapp fyrir horn ![]()
Var svaka gaman að hitta Ólöfu og co. og við náðum nú að gera nokkuð mikið á þessum 1,5 sólahring:
- Fórum í labbitúr í snjónum (týndum einum hundi en hann fannst að lokum aftur
) - Eyddum hálfum degi í verslunarmiðstöð og næstum allur tíminn fór í Victoria´s secret og Macy´s. Tvær búðir sem er bara ekki hægt að fá nóg af

- Fórum út að borða og vorum duglegar að sulla í léttvíni og cosmopolitan og vanilluvodka

- Sátum í kósiheitum við arineld og blöðruðum fram á morgunn

Í stuttu máli semsagt alveg eins og stuttir vinkonuhittingar eiga að vera ![]()
Ég er núna komin heim til mömmu og fer seinnipartinn í dag austur með allt mitt hafurtask, þ.á.m. allt sem ég keypti í ikea áður en ég fór út... ![]()
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.2.2007 | 00:29
...að þá er minns á leiðinni til Ólafar
Miklum lærdómi í Boston lokið en þetta námsskeið var alveg fyrirhafnarinnar virði þrátt fyrir miklar annir. Vorum í stuttu máli að læra hvernig á að leiðbeina fólki án þess að stjórna og breyta öllu án þess að segja fólki hvað á að gera!
Ætla nú samt að stefna á það að fara ekki á fleiri í bili. Það er alveg kominn tími til að einbeita sér að öllu sem þarf að gerast næstu vikurnar fyrir austan ![]()
Fórum aðeins í miðbæ Boston í gær í miklu slabbi og kíktum í búðir og fórum á æðislega veitingastað. Höfðum það meira að segja af að fara í neðanjarðarlestina án mikilla vandræða. Ég var búin að gera samning við strákana að ef við yrðum rænd myndi ég bara leiðbeina og semja við bófann
"Ég er ekkert sérstaklega fylgjandi því að þú takir peningana mína, hver er helsta ástæðan fyrir því að þú ættir að fá peningana mína? Hvernig finnst þér það ganga? Erum við sammála því að þetta séu mínir peningar?" Ég hefði sko alveg rúllað þessu upp en fékk ekkert að æfa mig
Egóið var kannski aðeins uppkeyrt þar sem ég hafði sannfært einn í hópnum um daginn um að gefa mér 50 dollara á aðeins 20 sekúndum og geri aðrir betur
höfðum sko 5 mínútur í æfinguna...![]()
En jæja, ég er á flugvellinum í Boston að bíða eftir fluginum mínu til Washington DC og hef ekki orðið var við neitt af þessu paniki sem var í fréttunum, hér er allt í ró og speki og ég hefði getað komið allavega klukkutíma seinna en ég gerði. Er að reyna að halda mér vakandi en við vorum soldið lengi á æðislega veitingastaðnum í gær í félagsskap aðalsnobbara Bostonar miðað við klæðnað og framkomu... geeeeeeeiisp ![]()
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.2.2007 | 02:29
... að það er gaman í Boston
High quality námsskeið eins og alltaf og mikið gaman að vera ekki einn til tilbreytingar en ég er með þrjá með mér í þetta skiptið
Á mánudagskvöldið fórum við að út að borða með tveim samstarfsmönnum í viðbót sem voru að millilenda í Boston (meira flakkið alltaf á þessu liði
) 
Vorum í banastuði með flugþreytu og svefngalsa og þegar einn fékk buffalóvængi borna fram í forrétt fannst öðrum hann tilneyddur til að spyrja þjóninn hvort buffalóar gætu virkilega flogið á svona litlum vængjum
Þjóninum stakk ekki bros á vör en útskýrði fyrir okkur að þetta væri sko kjúklingur, nafnið ætti rætur sínar að rekja til sósunnar og buffalóar væru eiginlega útdauðir!!!!
Ég hélt ég myndi bókstaflega deyja úr hlátri ![]()
![]()
![]()
![]()
og eftir þetta varð mission kvöldsins að fá þjóninn til að brosa að aulabröndurunum en í stuttu máli sagt var mission EKKI accomplished!
Ég er viss um að hann hafi fengið hæstu einkunn í þjónaskólanum og ætti bara að vera í butler stöðu á einhverju fínu sveitasetri... ![]()
Í kvöld skelltum við okkur í verslunarleiðangur í æðislegt mall í Cambridge sem ég þekkti nú alveg út og suður eftir síðustu Bostonferð og ég keypti mér ýmislegt sem mig bráðvantaði eins og t.d. skó og jakka
Fjárfesti í síðri Calvin Clain rússkinskápu á 75% afslætti og geri aðrir betur!
Over and out
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.2.2007 | 21:33
að það er ekki netlaust á Reyðarfirði :o)
en ennþá netlaust heima hjá mér, þessi blessuðu símafyrirtæki eru nú ekki með bestu þjónustu í heimi ![]()
Ég er komin í bæinn núna og var með allskonar áætlanir um ýmis konar félagsstarf í kvöld en svo borðaði ég yfir mig af læri heima hjá mömmu og er komin upp í sófa þaðan sem er ekki aftur snúið! Nenni nákvæmlega ekki neinu nema fara snemma upp í rúm! ![]()
Stefnan er tekin á Boston á mánudaginn og ég framlengi ferðina aðeins og fer að heimsækja Ólöfu í 1,5 sólahring! ![]()
![]()
Hlakka ýkt til! ![]()
![]()
VÍÍÍÍÍÍÍIIIIIIIIIII!!!!!!!!
svo stal ég þessu af síðunni hennar Dísu sem er ótrúlega fyndinn bloggari!! ![]()
A : best kisser ever.
B : You like people.
C : You are really silly.
D : You like to drink.
E : Great in bed.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You are Quirky
I : Great in bed.
J : People Adore you
K : You're wild and crazy.
L : Unbelievably great in bed.
M: You like to drink.
N: one in a million.
O: awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : Fuckin crazy.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgmental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y : best boy/girl friend any one can ask for.
Z : Always ready
Hér kemur svo nafnið mitt
Gerið það sama og allir koma nú! 
A : best kisser ever.
G : You never let people tell you what to do.
N: one in a million.
E : Great in bed.
S : Easy to fall in love with.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)











