Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
29.5.2007 | 23:34
...að ég er greinilega komin með kuldaóþol!
er búin að bóka 2ja vikna ferð til Karabíska hafsins, nánar tiltekið Dóminíska lýðveldisins um jólin ![]()
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.5.2007 | 19:17
...að það snjóar í Fagradalnum!!!!
Skrapp til Egilsstaða áðan og það var í alvörunni alvöru snjókoma í Fagradalnum!!!! Þetter nú barastaa alls ekki hægt. Nær sem betur fer ekki til stórborgarinnar Reyðarfjarðar en SAMT!
Ætli hreindýrin komi kannski tilbaka í júní!!!???
gvöð hvað ég er fegin að ég er á leiðinni í sólina...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.5.2007 | 23:13
...að kettlingurinn er búinn að opna augun
jédúddamía hvað hann er sætur
Það er greinilega gott að vera einbirni því hann er að springa úr fitu bara vikugamall og það er strax búið að panta hann í sveitina!
Skellti mér á Pirates of the Carabian áðan , fyndið að geta séð hana á Reyðarfirði áður en hún er sýnd í Bandaríkjunum og annars staðar í heiminum. Þetta er bara fínasta mynd, við vorum líka búin að hita upp og horfa á báðar fyrri myndirnar síðustu daga. Væri alveg til í að fá einn sona captain Jack Sparrow lánaðan í eina viku eða svo... ![]()
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.5.2007 | 19:21
...að það fjölgar og fjölgar á heimilinu
Nú er Elín Reyniskærasta orðinn fastagestur og Dirty kisuslut skaut út einum kettling í síðustu viku. Ég hef aldrei heyrt um kött sem eignast bara einn kettling en hún afrekaði þetta meðan enginn var heima og ég finn ekki fleiri
Hún er orðin mjó og einbirnið tvöfaldast á hverjum degi í góðri einbirnisumsjá inni í fataskáp!
Helgin var frekar busy með fjöldaframleiðslu í ilmkertagerð með dyggri aðstoð Viktoríu og Óskars og á laugardagskvöldið var farið í bæjarferð á Egilsstaði á Valaskjálfarball með Magna babe og hans á móti sólarvinum. Þar voru víst rúmlega 700 manns og mikið mikið fjör
ég sleit allavega út dansskónum, gott ég á fleiri en eitt par ![]()
![]()
Maður er svo aðeins farinn að kynnast kjaftasögunum í sveitinni en ég frétti það frá einum sem var í rútunni í vinnuna á mánudeginum að heitasta sagan þann morguninn að ég og Viktoría hefðum komið af stað fjöldaslagsmálum á ballinu!
- strákarnir voru sem sagt að slást um okkur!!
alveg hilariuos, skrýtið samt að hvorug okkar tók eftir því!!! ![]()
Sveitalíf er fyndið líf og það styttist óðum í Grikkland!!
víiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii ![]()
![]()
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.5.2007 | 16:35
...að ég sagði aldrei frá fyrsta djamminu með nýju sambýlingunum mínum
Einn fór snemma ofurölvi "heim" - hélt hann væri á nýja heimilinu sínu þangað til hann áttaði sig á því að hann var staddur í vitlausu húsi og komst óáreittur út aftur ![]()
Einn svaf á flísalögðu klósettgólfi í íbúð einni þar sem gleði var mikil þangað til enginn komst lengur á klósettið! ![]()
Sá þriðji (ábyrga systirin) neyddist til að sofa í gleðihúsinu líka þar sem hún beið og beið og beið og beið eftir bróður einum þangað til hún var orðin sybbin... ábyrga systirin samt ekki leggja saman tvo og tvo að bróðir væri horfinn og baðherbergið blokkerað... ![]()
Það er gott að búa á Reyðarfirði!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.5.2007 | 17:59
...að það er leiðinlegt að vera veikur heima!
Náði mér í sona fína flensu og skreið heim úr vinnu á mánudaginn og er bar alveg ómuleg ennþá! Ekki mínir mest kynþokkafyllstu dagar að vera horandi með rauð augu og hita heima
Er búin að vera tölvulaus þangað til rétt áðan svo nú get ég allavega bloggað mér til dægradvalar og catchað upp á e-meilum síðustu daga og til að hífa skapvonskuna upp setti ég niður alla skemmtilegu hlutina sem ég ætla að gera í sumar. Þetta eru laugardagar sumarsins:
2.júni Flýg beint í djammið á Krít ![]()
9.júní Kem heim sólbrún og sæt og beint á opnunar hátíð álversins á Reyðarfirði ![]()
16.júní Verð vonandi að gera eitthvað svaðalega skemmtilegt með Ólöfu! ![]()
23.júní ?
30.júní Ættarmót ![]()
7.júlí Blanda mojitos fyrir Lindu en hún verður í vikuheimsókn ![]()
14.júlí UK roadtrip - Edinburgh ![]()
21.júlí UK roadtrip - London ![]()
28.júlí Franskir dagar á Fáskrúðsfirði ![]()
4.ágúst Verslunarmannahelgi – Neistaflug á Neskaupsstað (eru reyndar einhverjar sögusagnir um að hátíðin verði á Reyðarfirði þetta árið en sjáum hvað setur...) ![]()
11.ágúst Fiskidagar á Dalvík
18.ágúst ?
25.ágúst ?
Er ég að gleyma einhverju og ætla einhverjir fleiri að koma að heimsækja mig?!?
og hmmmmfff er búin að breyta litnum á síðunni í takt við kosningarnar!! ![]()
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.5.2007 | 10:36
...að þá eru 2 karlmenn fluttir inn til mín
Eitt stykki Reynir og eitt stykki Óskar. Það er bara huggulegt að hafa þá hérna, ég er allavega búin að fá fínasta kvöldmat sem gerist nú ekki á hverjum degi
Man satt að segja ekki hvenær ég eldaði soleiðis síðast og í kvöld ætlum við að grilla í góða veðrinu
Það er reyndar aðeins farið að kólna aftur en búið að vera algjör bongóblíða síðan ég kom heim. Sól á morgnana og sól á kvöldin! ![]()
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.5.2007 | 09:56
...að nú "á" ég litla dóttur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)











