Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

...að ég er Lilja

You Are A Lily
You are a nurturer and all around natural therapist.
People see you as their rock. And they are able to depend on you.
You are a soothing influence. You can make people feel better with a few words.
Your caring has more of an impact than even you realize.
Veit sosem ekki hvað er mikið til í þessu að ofan en ég er þá allavega lilja á Reyðarfirði núna. Notaði fimmtudag og föstudag í bænum og náði að hitta helling af mínum kæru vinkonum og skralla fram á nótt á föstudeginum Wink Á laugardag var svo brunað bílandi með Viktoríu og 4 hundum og í samfloti með Róberti og Heiðari sem voru á leið til Dalvíkur. Á laugardagskvöldið var ég svo plötuð í póker í fyrsta skipti á ævinni og hafði það að af vinna þessa 3 sem ég var að spila með Cool Þau kölluðu það beginners luck en sjáum bara til - verst við vorum ekki að spila með alvöru peninga! Grin

...að ég er komin heim

Búið að vera alveg yndisleg ferð en alltaf svo gott að koma heim líka. Gerðum engar gloríur á leiðinni heim nema kannski keyra um á flötu dekki og klína slatta af remúlaði og sinnepi á stýrið. Ég vakti lukku í gærmorgun með að vekja alla með ýktu hláturskasti. LoL Man ekkert eftir þessu eða hvað mig var að dreyma en veit þó að allan morguninn var ég með "jón er kominn heim" á heilanum og söng það hástöfum. Spurning hvort mig hafi verið að dreyma hann Jón og hvort hann hafi verið svona ægilega skemmtilegur, hver er þessi Jón?!?! InLove Þarf að sýna honum öll geðveiku nærfötin sem ég keypti í Skotlandi! GrinGrinGrin

Og heyrðu já - stelpupartý hjá Ólöfu á laugardagskvöldið Tounge fyrir allar skemmtilegar stelpur! Cool

Og heyrðu já 2 - stelpuferð til New York fim - mán frá 25.október (ég á 25+ ammæli þann 26.okt). Þetta er líka fyrir allar skemmtilegar stelpur! Cool So far eru allavega ég og Viktoría búnar að bóka og ég held líka ein önnur úr vinnunni og vinkona hennar. NEW YORK BABY!!!!!Grin


...að í dag fór ég í fangelsi

skotland 212 Ætti kannski að loka mig inni fyrir ofnotkun á visakorti einu en ég rölti nú bara þarna inn sjálfviljug. Fórum að skoða mest brutal fangelsi Bretlands og röltum þarna um í einhvern klukkutíma eða svo, prufuðum nokkur pyntingartæki og leyfðum leikara að fara með okkur eins og fanga Bandit
Vorum annars í Stirling í dag sem er æðislegur lítill bær með miklum sögulegum minjum og mikið um skosku þjóðhetjuna William Wallace. Kannski ég skelli inn eitthvað af öllum brunarústar og kastalamyndunum sem ég er búin að taka...

PS. Hef ekki verslað neitt í dag, barasta alls ekki neitt!!!!! Woundering

Nokkrar myndir komnar í albúmið frá Skotlandi!

Og PS. Missti alveg hárkúlið í túristabusferðinni fyrr um daginn!


...að ég er shopaholic!

Af verstu gerð Tounge

Sólin skín í Edinborg í dag - veiiiiii Cool þá þarf ég ekki að notast við hagnýtustu kaupin hingað til - REGNHLÍF! Giskiði hvernig hún er á litinn... Wink


...að í morgun dó ég næstum úr hlátri!

Ég og móðir vor lögðum semsagt af stað í ævintýraferð mikla til Skotlands í morgun, eða eiginlega sona nótt samkvæmt minni skilgreiningu. Sleeping Minns var að reyna að klára eitthvað af miljón hlutunum sem minns langaði að klára í vinnunni í gærkvöldi svo það var eiginlega bara sofið í 2 tíma áður en rokið var upp á flugvöll. Móðir vor var bílstjóri með meiru og minns bara dottaði í bílnum þangað til við flugvöllinn þegar móðir vor byrjaði eitthvað að vesenast hvert hún ætti að beygja. Minns mumlaði eitthvað með brottfarir - beygja til hægri og móðir vor hlýddi kallinu. Áður en ég veit af sé ég stórt STOPP skilti, öryggishlið og allskonar gaura en móður vor lá greinilega á að komast inn í flugstöð því hún keyrði bara áfram á fullri ferð. Shocking Skyndilega vorum við komnar inn á stórt opið svæði með flugvélum á víð og dreif og áfram keyrði móðir vor bara og mumlaði eitthvað um hvað væri búið að breyta miklu á flugstöðinni!! Pinch Þegar þarna var komið sögu VAKNAÐI ég allsvakalega Police"mamma!!!, þú ert komin inn á flugbrautina, snúðu við, snúðu við" Það var og gert í sömu andrá og eitthvað af bláum ljósum komu æðandi að okkur. Police Airport security mætt á svæðið!!! Police"hvert eruð þið eiginlega að fara!?!?!!" Police"bara veit það ekki, held við séum eitthvað að villast". Whistling "JÁÁÁ, þið eigið allavega ekki að vera hérna!!!"Police

Þegar hérna var komið sögu hafði ég enga stjórn á sjálfri mér og vældi bara af hlátri en mamma tók bara ljoskuna á þetta og sagði hátt og skýrt; "HVA, akkúru var hann svona reiður?" Ég er semsagt dæmt til að vera í samfloti með ljóskum hvert sem ég fer. "Ætli þetta hafi nokkuð með mig að gera?" Whistling

mamma er samt með útskýringu á þessu ölllu saman - hefðarfólk er keyrt beint upp að flugvélinni. Ekkert innritunarvesen hér! Sideways Hún var samt soldið hvekkt þegar hún sá lögreglubúninga inn í flugstöð eftir atburðinn. OG BTW, hún er líka að hugsa um að skrifa í blöðin um lélega öryggisgæslu á flugstöðinni okkar. Ef 2 sofandi ljóskur komast á suzuki swift inn á flugbraut, hver kemst þá ekki? WinkTounge


...að þá er minns kominn í stutt sumarfrí aftur

Er eiginlega hálfstressandi bara þar sem ég ætlaði að vera búin að klára ca. miljón hluti í vinnunni fyrir frí sem ég gerði ekki en well! það eru sennilega mikilvægari hlutir í lífinu en það... Woundering

Linda sæta er búin að vera hjá mér síðan á sunnudag en hún ætlar að skrifa lokaverkefni hjá okkur sem er ægilega spennandi.

Well, er semsagt komin til mömmu og er off to Edinburgh í fyrramálið, allt of snemma BTW! Sideways æ lækí sllíping! Kem heim á fimmtudag eftir viku og verð yfir helgina á höfuðborgarsvæðinu. Treysti ykkur stelpunum til að skipuleggja eitthvað skemmtilegt! GrinWinkGrin


...að þessi stórmerkilega frétt birtist í Fjarðaálsfréttum í dag! :)

Blonde and blonder – based on a true story

ABS eða abs? Á ónefndri strönd á Krít lágu 2 ljóskur með Cosmo tímarit í hönd:

Ljóska 1: Vá, er Cosmo með grein um ABS?

Ljóska 2: Ha!? Í alvörunni?!?!! Kúúúúúúl

Ljóska 1: Já, sjáðu bara.... greinin heitir “abs for life”

Ljóska 2: Leyfðu mér að sjá...

10 mínútum síðar:

Ljóska 1 og 2: neiiiiiiiii, þetta er um abs (lesist magavöðvar) en ekki ABS (lesist Alcoa Business System)

 

...að þetta er tilraun 2

til að koma myndböndum frá ættarmótinu á síðuna.
Stórglæsileg fjölskylda og ótrúlegir sönghæfileikar! Cool

og mikið mikið seinna... Wink
Og PS: Allavega tveir af mínum fabúlus frændum eru búnir að sækja um starf hjá Alcoa Fjarðaáli! GrinGrinGrin Við þurfum þá allavega ekki að auglýsa eftir gítarleikara á næstunni! Tounge

...að það er fallegt á Krít!


...að við systkinin erum sæt í fullum skrúða! :)

er það ekki? Tounge

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband