Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

...að þetta verður frábært ár!

Er alveg handviss um það Grin Síðasta ár var viðburðamikið og skemmtilegt en held þetta verði ennþá skemmtilegra!  Cool
Það er jú ótrúlega spennandi að taka þátt í starti á risastóru álveri, ég á helling af góðum vinum hérna og annarsstaðar í heiminum og ég ætla svo sannarlega að ferðast eitthvað á þessu ári líka. Svo er líka von á mörgum góðum heimsóknum til mín næstu vikurnar og nú get ég flogið suður 10 sinnum á þessu ári fyrir aðeins 4þús krónur í boði Alcoa svo maður gerir kannski meira af því að kíkja í helgarheimsóknir Smile Þetta eru svo óstaðfestar utanlandsferðahugleiðingar þessa árs Cool:

  • Japan og Tyrkland í maí (vinna) 
  • frívika í Evrópu í júni (Ítalía eða Spánn)
  • 2 frívikur í Latín Ameríku í ágúst/sept (Flórída, skemmtiferðaskip til Kúbu/Mexíkó, flug til dóminíska)
  • Kanada í nóvember (vinna)
  • 2 frívikur í Latin Ameríku í desember (já, ég er húkkd, langar ekkert að vera heima næstu jól heldur Cool)

Já, dominíska verður það aftur þar sem ég gekk í ferðaklúbb RCI í síðustu ferð og á nú böns af hótelvikum um allan heim og fékk í kaupbæti frívikur á sama hóteli og við vorum á. Nánar tiltekið svítu fyrir 4 með öllu innifalið sem ég verð að nota innan 2ja ára.
Einn starfsmaðurinn í ferðaklúbbnum er nú orðinn góðvinur minn og einn dansarinn af hótelinu hringdi í mig um daginn og sagðist ætla að giftast mér og eignast 20 börn Heart Greyið strákarnir fá dollaramerki í augun þegar þeir sjá hvítar konur sem hafa efni á að ferðast svona á milli heimshluta Sideways Anyways, markmið helgarinnar er að koma íbúðinni í samt lag og þvo þrjú tonn af þvotti! Frown Ætli maður kíki ekki samt í partý í kvöld líka GrinGrin
Og já, ef einhverjum vantar ferðafélaga á árinu er ég alltaf inn Tounge


...að ég veit barasta ekki hvar á að byrja

Byrja kannski á að óska öllum sem detta hingað inn gleðilegs árs og þakka kærlega fyrir jólakveðjurnar sem ég er búin að fá. Ég skildi alla út undan þetta árið þar sem ég sendi engin jólakort. dominiska (197) Áramótaheitið mitt í ár er að fara aftur til dóminíska lýðveldisins og sem fyrst! Þessi staður og þessi ferð var bara með ólíkindum ótrúlega stórkostleg! Fullkomið veður, æðisleg strönd Cool, yndislegt fólk, geðveik tónlist, frábærir dansar, flott hótel með æðisgengnum skemmtiprógrömmum á daginn og kvöldin Grin, góður matur og  klikkuð diskótek og ekki má gleyma strákunum sem kunna svo sannarlega að dansa og hreyfa mjaðmirnar!!! Wink Svo eignaðist maður helling af nýjum vinum og herbergisfélaginn minn hún Valzý er eiginlega bara orðinn nýr fjölskyldumeðlimur. Hef aldrei á ævinni farið í sólarferð í 2 vikur og bara alls alls ekki verið tilbúin að fara heim AT ALL Woundering Það er ennþá svona “bitter sweet” að hlusta á tónlistina frá hótelinu og horfa á myndböndin. Gamló var ÆÐISGENGIN upplifun og hér er ein áramótamynd af okkur Reyni og brot af uppáhalds dansinum okkar allra. Það glittir í mig og Reyni þarna fyrir aftan en í fremstu röð eru starfsmenn af hótelinu: Jonathan “Pink Panther”, Antonio “Cocoloco”, Antonio “Mickey Mouse og “The Blonde” en allir dansarirnar á hótelinu eru með svona ótrúlega lame sviðsnöfn sem þau voru þó ægilega stolt af Grin Fleiri sviðsnöfn og nick komu við sögu í þessari ferð: The skinny boy, The funny boy einnig nefndur Carrot Head, Big Lips, Wheres the whissel, Black Panther, Homminn, Hector the Protector og ekki má gleyma Sleezy doorman! Wink Móðir vor gekk mestmegnis undir nafninu sexy mama og mama mafia (dugleg að prútta Wink)

Anyways, ég ætla að fara að hlaða inn myndum með allri ferðasögunni en þangað til eru nokkrir lærdómspunktar frá ferðinni:

  • Það er FÁBÆÆÆÆR hugmynd að fara á sólarhótel með öllu innifalið. Það þýðir að maður þarf aldrei að borga fyrir mat, drykki (já kokkteila og allt), sólstóla eða bara neitt.
  • Dóminískir vanilluvindlar eru RUGLgóðir! Taldir betri en kúbanskir og OMG það er upplifun að reykja þá.
  • Það er gaman að djamma með Beetlejuice, Spiderman og Mask en þeir birtust á diskóið góða Coco Bongo á hverju kvöldi kl. 1
  • Það er flóknara en ég hélt að snorkla en hellídí gaman þegar maður nær tökum á því.
  • Það er MJÖG slæm hugmynd að setjast upp í bíl í dóminíska. Umferðareglurnar eru byggðar á því hver er frekastur og jafnvel fullastur!
  • Nokkrir dóminískir og haitískir karlmenn REALLY REALLY REALLY LIKE hvíta kvenmenn sem eiga peninga. Sumir þeirra liggja undir grun að vera í alvörunni karlkyns hórur og aðrir vilja fá hvítar kærustur og ganga undir nafninu spanky pankies Tounge
  • Mental note to self: Þú þarft ALLTAF sterka sólarvörn, líka þegar þú ert komin með smá lit!!!
  • Moskítóar ELSKA mig InLove alveg sama hvaða brellibrögðum ég beiti... Frown
  • Miðameríka hefur svipaða yndislega stórkostlega menningu og Brasilía. Íslendingar þyrftu að læra að vera svona hamingjusamir með öll þau lífsgæði sem við höfum.
  • Hvítingjar eru ekki góðir að hreyfa mjaðmirnar en æfingin skapar meistarann!
  • Hvítir karlmenn kunna alls alls ekki að hreyfa mjaðmirnar og þeir eru ekki duglegir að strippa Devil
  • Það eru leðurblökur í dóminiska og þar eru líka tarantúlur en þær halda sig sem betur fer mest á sykurökrunum.
  • Það er bannað að setja klósettpappír í klósettskálina á dóminíska... Shocking
  • Nú veit ég afhverju sjóræningjar eru alltaf að drekka romm, karabískt romm er SJÚKLEGA gott! Go Cuba Libre!!! Smile

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband