Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

...að veturinn lét sko sjá sig á Austurlandinu!

dominiska3 001 Toungeéminn almáttugur djísús kræstur!!! Í fyrradag byrjaði að snjóa og svo bara dominiska3 036 hélt áfram að snjóa og svo snjóaði meira. Í gær voru dalir og heiðar bara lokaðar svo Egilsstaðabúar urðu gjörso vel að eyða nóttinni í City Reyðarfjörður og næturvaktafólk þaðan var bara heima hjá sér. Svo hélt bara áfram að snjóa og ég átti ekki mitt besta móment í morgun. Æddi galvösk út með bleika húfu og loðvettlinga og þurfti að klofa snjó upp að mitti! Hélt í bjartsýniskasti að fíni fjórhjóladrifni jeppalingurinn minn færi nú létt með þetta en annað kom á daginn, eftir hálftíma basl með spól og snjómokstur var mér bjargað af gaur á stórum jeppa sem dró mig upp á götu Blush Hann hefur sennilega áttað sig á því að mér væri ekki viðbjargandi; eldrauð í kinnum, í blautum gallabuxum upp á læri og snjó allsstaðar veifandi plastskóflu eins og meiníak með bleiku húfuna á hausnum Crying Vinnufélagi dominiska3 065 minn tjáði mér í morgun að það væri bara um tvennt að ræða:
a) fá mér stærri jeppa
b) ná mér í karlmann dominiska3 003

ég kýs stærri jeppa!! Wink Hvað hefur maður annars við karlmann að gera svona dags daglega? Þeir birtast yfirleitt eins og guðsgjöf svona þegar maður þarf á þeim að halda Grin
Bloggleysið upp á síðkastið hefur annars ekki stafað af viðburðaleysi. Síðustu helgi var Ólöf í heimsókn og við áttum alveg STÓRKOSTLEGA helgi og erum meðal annars búnar að plana næstum 3ja vikna sólarferð í haust! ó mæ dominiska3 039 god, ég er sko strax farin að hlakka til!!! Í vikunni á undan kom mamma í heimsókn sem fór þó ekki betur en það að hún var komin með sjúkrabíl til neskaupsstaðar nokkrum tímum seinna! Til að gera langa sögu stutta er hún komin heim núna og er sona næstum í lagi held ég. H dominiska3 071 elgina þar á undan var Valzý í heimsókn sem var nú heldur ekki amalegt. Það var sko haldið dóminískt partý með suðrænni tónlist, dancing lessons og dóminísku rommi og vindlum! Cool Svo er búið að vera svaðaleg törn í vinnunni í vikunni og ég stefni á það að gera mest lítið annað en hafa það huggó hérna heima um helgina! Læt nokkrar myndir frá síðustu 2 vikum fylgja með til að lífga þennan langa texta aðeins upp Tounge


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband